Skipti: Kröfuhafar samþykkja fjárhagslega endurskipulagningu skulda Skipta hf
30.04 2013Fram kom í tilkynningu Skipta hf. dags. 2. apríl 2013 að fyrir lægi tillaga um endurskipulagningu skulda félagsins. Samkvæmt tilkynningunni voru meginatriði tillögunnar svohljóðandi:
Í fyrsta lagi, endurgreiðir Skipti hf. hverjum og einum kröfuhafa (miðað við skráða kröfuhafa kl. 16:30 þann 27.mars 2013) kr. 2.000.000 í reiðufé og kemur greiðslan til lækkunar höfuðstóls viðkomandi kröfu
Í öðru lagi að öllum kröfum samkvæmt skuldabréfunum sem skráð eru í kauphöll undir heiti SIMI 06 01 verði breytt eða skipt fyrir hlutafé í Skiptum hf.
Í þriðja lagi að öllum kröfum Arion banka hf. sem ekki eru hluti af núverandi forgangsláni félagsins, verði breytt eða skipt fyrir hlutafé í Skiptum.
Í fjórða lagi felur tillagan í sér að forgangslán félagsins verði endurfjármagnað að fullu með annars vegar láni frá Arion banka hf. að fjárhæð um kr. 19 milljarðar og hins vegar með útgáfu skuldabréfaflokks að fjárhæð um kr. 8 milljarðar, eða annarri fjármögnun. Er gert ráð fyrir að framangreindar lánveitingar verði tryggðar með fyrsta veðrétti í helstu eignum Skipta hf. og dótturfélögum þess.
Helsta skilyrði tillögu félagsins um endurskipulagningu skulda félagsins er að Arion banki hf. og allir eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 gerist aðilar að samningi um endurskipulagninguna eigi síðar en þann 30. apríl 2013.
Í kjölfar jákvæðra samskipta við Arion banka hf. og eigendur skuldabréfaflokksins SIMI 06 01 er hér með tilkynnt um að framangreindir aðilar hafa samþykkt að gerast aðilar að samningi um endurskipulagninguna. Þá liggur fyrir lánsloforð til að endurfjármagna forgangslán félagsins.
Steinn Logi Björnsson, forstjóri Skipta: „Með þessu samkomulagi er mjög stórum áfanga náð í endurskipulagningu fjárhags Skipta hf. og hefur félagið nú 2 mánuði til að ganga formlega frá öllum málum því tengt. Skipti hf. geta því horft björtum augum fram á við og haldið áfram öflugri uppbyggingu á fjarskiptainnviðum og fjarskiptakerfum.“
Eldri tilkynningar
- 10.03 2025 Leiðbeiningar vegna skattframtals
- 24.06 2023 Aðalfundur Klakka ehf.
- 21.06 2022 Aðalfundur Klakka ehf
- 08.06 2021 Aðalfundur Klakka ehf.
- 08.06 2020 Aðalfundur Klakka ehf.
- 07.01 2020 Klakki lýkur við söluna á Lykli
- 10.10 2019 Klakki undirritar samning um sölu á Lykli fjármögnun hf
- 23.08 2019 Aðalfundur Klakka ehf.
- 19.04 2019 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 18.02 2019 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 12.11 2018 Forstjóri Klakka lætur af störfum
- 05.11 2018 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 14.08 2018 Aðalfundur Klakka ehf.
- 05.03 2018 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 14.12 2017 Tilkynning frá stjórn Klakka ehf.
- 04.12 2017 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 09.06 2017 Aðalfundur Klakka ehf.
- 31.05 2017 Kostagreining á eignarhlut Klakka í Lýsingu
- 07.03 2017 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 06.02 2017 Leiðbeiningar vegna skattframtala 2017
- 13.12 2016 Klakki selur hlut sinn í Kviku
- 18.08 2016 Aðalfundur Klakka ehf.
- 01.03 2016 Leiðbeiningar vegna skattframtala
- 01.02 2016 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 25.01 2016 BG12 og Klakki selja eignarhlut sinn í Bakkavör
- 18.08 2015 Aðalfundur Klakka ehf.
- 22.10 2014 Klakki ehf selur 14,96% í VÍS
- 13.10 2014 Klakki ehf selur 7,99% í VÍS
- 12.08 2014 Aðalfundur Klakka ehf.
- 02.06 2014 Klakki ehf selur 8% í VÍS
- 12.08 2013 Aðalfundur Klakka ehf.
- 20.06 2013 Fjárhagslegri endurskipulagningu Skipta lokið
- 30.04 2013 Skipti: Kröfuhafar samþykkja fjárhagslega endurskipulagningu skulda Skipta hf
- 17.04 2013 Mikil umframeftirspurn í hlutafjárútboði VÍS
- 02.04 2013 Skipti: Tillögur að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu
- 27.03 2013 Hlutafé VÍS verðlagt á 17-20 ma.kr. í almennu útboði sem hefst 12. apríl
- 13.03 2013 Klakki býður meirihluta hlutafjár VÍS til sölu
- 13.03 2013 VÍS: Fréttatilkynning VÍS um afkomu ársins 2012
- 24.01 2013 Skipti: Fjárhagsleg endurskipulagning Skipta hf.
- 23.01 2013 VÍS í söluferli