Skipti: Fjárhagsleg endurskipulagning Skipta hf.
24.01 2013Stjórn Skipta hf. hefur ákveðið að hefja fjárhagslega endurskipulagningu. Leitað verður samstarfs við lánardrottna félagsins við það verkefni og standa vonir til þess að tillögur liggi fyrir á fyrsta eða öðrum ársfjórðungi þessa árs. Líklegt er að tillögurnar muni fela í sér að óskað verði eftir því við eigendur skráðra skuldabréfa að þeir fallist á skilmálabreytingar á bréfunum og/eða breytingu skulda í hlutafé.
Skipti hafa á síðustu tveimur árum unnið á grundvelli þriggja ára áætlunar sem miðar að því að bæta rekstur félagsins og þar með auka virði þess. Sú áætlun hefur gengið eftir og afkoma félagsins hefur batnað verulega. Bráðabirgðauppgjör ársins 2012 liggur fyrir. Samkvæmt því verður rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) Skipta hf. um 8 milljarðar króna á árinu, án einskiptisliða, samanborið við 6.230 milljónir króna árið 2011 og 5.278 milljónir króna árið 2010.
Þrír nýir stjórnarmenn hafa verið kjörnir í stjórn Skipta hf. Benedikt Sveinsson, Heiðrún Jónsdóttir og Helgi Magnússon. Auk þeirra er stjórn skipuð Dagnýju Halldórsdóttur og Magnúsi Sch. Thorsteinsson forstjóra Klakka ehf. Benedikt er nýr formaður stjórnar og Heiðrún varaformaður. Úr stjórn ganga Skúli Valberg Ólafsson, Jóhanna Waagfjörð og Jón Örn Guðmundsson. Klakki ehf. er eigandi 100% hlutafjár Skipta hf.
Eldri tilkynningar
- 10.03 2025 Leiðbeiningar vegna skattframtals
- 24.06 2023 Aðalfundur Klakka ehf.
- 21.06 2022 Aðalfundur Klakka ehf
- 08.06 2021 Aðalfundur Klakka ehf.
- 08.06 2020 Aðalfundur Klakka ehf.
- 07.01 2020 Klakki lýkur við söluna á Lykli
- 10.10 2019 Klakki undirritar samning um sölu á Lykli fjármögnun hf
- 23.08 2019 Aðalfundur Klakka ehf.
- 19.04 2019 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 18.02 2019 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 12.11 2018 Forstjóri Klakka lætur af störfum
- 05.11 2018 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 14.08 2018 Aðalfundur Klakka ehf.
- 05.03 2018 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 14.12 2017 Tilkynning frá stjórn Klakka ehf.
- 04.12 2017 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 09.06 2017 Aðalfundur Klakka ehf.
- 31.05 2017 Kostagreining á eignarhlut Klakka í Lýsingu
- 07.03 2017 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 06.02 2017 Leiðbeiningar vegna skattframtala 2017
- 13.12 2016 Klakki selur hlut sinn í Kviku
- 18.08 2016 Aðalfundur Klakka ehf.
- 01.03 2016 Leiðbeiningar vegna skattframtala
- 01.02 2016 Hluthafafundur Klakka ehf.
- 25.01 2016 BG12 og Klakki selja eignarhlut sinn í Bakkavör
- 18.08 2015 Aðalfundur Klakka ehf.
- 22.10 2014 Klakki ehf selur 14,96% í VÍS
- 13.10 2014 Klakki ehf selur 7,99% í VÍS
- 12.08 2014 Aðalfundur Klakka ehf.
- 02.06 2014 Klakki ehf selur 8% í VÍS
- 12.08 2013 Aðalfundur Klakka ehf.
- 20.06 2013 Fjárhagslegri endurskipulagningu Skipta lokið
- 30.04 2013 Skipti: Kröfuhafar samþykkja fjárhagslega endurskipulagningu skulda Skipta hf
- 17.04 2013 Mikil umframeftirspurn í hlutafjárútboði VÍS
- 02.04 2013 Skipti: Tillögur að samkomulagi um fjárhagslega endurskipulagningu
- 27.03 2013 Hlutafé VÍS verðlagt á 17-20 ma.kr. í almennu útboði sem hefst 12. apríl
- 13.03 2013 Klakki býður meirihluta hlutafjár VÍS til sölu
- 13.03 2013 VÍS: Fréttatilkynning VÍS um afkomu ársins 2012
- 24.01 2013 Skipti: Fjárhagsleg endurskipulagning Skipta hf.
- 23.01 2013 VÍS í söluferli